Endurhæfing-þekkingarsetur er einkarekið fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu, sem sérhæfir sig í endurhæfingu fyrir einstaklinga með fjölþættar fatlanir.

Vorið 2004 tók Endurhæfing að sér þjónustu við skjólstæðinga endurhæfingardeildar Landspítalans í Kópavogi. Um var að ræða fjölfatlaða einstaklinga, sem bjuggu annars vegar á Landspítala í Kópavogi og hinsvegar á sambýlum á höfuðborgarsvæðinu.

Samningar um þjónustu og rekstur voru undirritaðir við Heilbrigðisráðuneyti og Landspítala í maí 2004. Samningar voru síðan endurnýjaðir árið 2009. Hjá fyrirtækinu starfa sjúkraþjálfarar, þroskaþjálfi, íþróttafræðingur og sérhæft aðstoðarfólk, auk þess sem annað fagfólk er kallað til eftir þörfum.

Framkvæmdarstjóri og yfirsjúkraþjálfari er Guðný Jónsdóttir og er Atli Ágústsson sjúkraþjálfari og heilbrigðisverkfræðingur faglegur staðgengill hennar.