Postural Management - 24/7 (allan sólarhringinn, alla daga ársins) Unnið er samkvæmt skilgreiningum og hugmyndafræði líkamsstöðustjórnunar – Posture Management og ICF líkani WHO sem leggur áherslu á virkni og þátttöku. Starfsfólk hefur sinnt rannsóknarvinnu og vinnu við þróun hjálpartækja ásamt því að vera í samvinnu við erlenda kollega um þróun meðferða fyrir skjólstæðinga sína. - Postural Management er stjórnun líkamsstöðu í liggjandi, sitjandi og standandi og gangandi stöðu, ásamt því að nota hjálpartæki eins og hjólastóla, göngugrindur og fl.
- Felur í sér þjálfun og nauðsynleg/viðeigandi hjálpartæki til að auka færni, auðvelda úrlausn verkefna, að ná/ávinna sér líkamsstöðu sem stuðlar að eðlilegum þroska og sem fyrirbyggir aflaganir (Nelham R., 2001).
Markmið með meðferð einstaklinga með fjölþættar fatlanir er í stórum dráttum tvennskonar: - Að hámarka færni, yfirleitt með aðstoð hjálpar- og stoðtækja.
- Að lágmarka afleidd vandamál fötlunarinnar.
- Engin “hands-on” meðferð getur komið algerlega í staðinn fyrir þessi grundvallaratriði.
Tilgangurinn er að... - Auka velferð og lífsgæði.
- Auka þátttöku og virkni einstaklingsins í samfélaginu.
- Auðvelda aðkomu fjölskyldu og umönnunaraðila.
- Tryggja nýtingu fjármuna.
|