|
1 |
Lauf Lauf, Landssamtök áhugafólks um flogaveiki, var stofnað í mars árið 1984. Í samtökunum er fólk með flogaveiki, fjölskyldur þeirra, vinir, heilbrigðisstarfsfólk og aðrir sem hafa áhuga á málefnum fólks með flogaveiki.
|
213 |
|
3 |
Umhyggja Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu.
|
177 |
|
4 |
Þroskahjálp Landsamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að málefnum fatlaðra, með það að markmiði að tryggja þeim fullt jafnrétti á við aðra þjóðfélagsþegna.
|
222 |
|
5 |
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra var stofnað 2. mars 1952 og hefur því verið starfandi í meira en fimmtíu ár. Það hefur það megin markmið að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna.
|
186 |
|
6 |
Greiningar og ráðgjafastöð ríkisins Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins þjónar börnum og unglingum með alvarlegar þroskaraskanir, hvar sem þau búa á landinu. Greiningarstöðin starfar samkvæmt lögum nr. 83/2003, en tilgangur laganna er tryggja „að börn með alvarlegar þroskaraskanir sem geta leitt til fötlunar fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem miða að því að draga úr afleiðingum röskunarinnar“.
|
195 |
|
7 |
Gen Vefurinn Gen.is er fyrst og fremst kennsluvefur í erfðafræði fyrir alla aldurshópa, en hann er einnig upplýsingavefur. Á vefnum er góður orða- og hugtakalisti þar sem ensk orð eru þýdd yfir á íslensku og frekari skýringar á ensku ef þarf.
|
289 |